Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, tilkynnti nýlega, úrslit í teiknisamkeppni sem hófst sl. haust í tengslum við Alþjóðalega skólamjólkurdaginn. Hann er haldinn hátíðlegur síðasta miðvikudag í september ár hvert og var Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn 2011 sá tólfti sem haldinn hefur verið.
Eins og undanfarin ár barst mikill fjöldi teikninga í samkeppnina sem Fræðslunefnd mjólkuriðnaðarins stendur að hér á landi. Að sögn Guðnýjar Steinsdóttur, markaðsstjóra MS, var þátttakan í keppninni nú svipuð og undanfarin ár og bárust ríflega 1100 teikningar frá 60 skólum alls staðar að af landinu. Tíu nemendum eru veittar viðurkenningar fyrir teikningar sínar að loknu vali á úrtaki mynda sem lagt var fyrir menntamálaráðherra, sem jafnframt er formaður dómnefndar.
Markmið keppninnar er að vekja athygli á mikilvægu hlutverki mjólkur í daglegu mataræði barna. Neysla mjólkur hefur aukist í grunnskólum á undanförnum árum, sem m.a. má rekja til mjólkurkælivéla sem víða hafa verið settar upp í skólunum.
Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn að undirlagi Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO. Að því tilefni, sem fyrr segir, fer árlega fram hér á landi teiknisamkeppni meðal nemanda í fjórða bekk í grunnskólum landsins. Eru verðlaunateikningarnar notaðar á veggspjöld og annað kynningarefni vegna Skólamjólkurdagsins sem fram fer í september ár hvert.
Vinningshafarnir:
Aðalheiður Agnes Hermannsdóttir 4.HVÞ – Nesskóla
Arngrímur Ottósson og Daníel Dacuda 4.N. – Laugarnesskóla
Ívan Kumar Bonifacius – Fossvogsskóla
Nikulás Nói Bjarnason – Brekkuskóla
Álfrún Tinna Guðnadóttir - 4.RLJ – Breiðagerðisskóla
Ísafold Kristín Halldórsdóttir – Landkotsskóla
Selma María Jónsdóttir – Selásskóla
Ásta Katrín Ágústsdóttir – 4.RLJ - Breiðagerðisskóla
Árney Ólöf Arnardóttir – Brúarásskóla
Bjarki Guðmundsson, 4. AÞ – Borgaskóla
Til sýnis á vefnum
Hver verðlaunahafanna fær 25 þúsund krónur, sem renna óskiptar í bekkjarsjóð viðkomandi. Vinningsteikningarnar er að finna undir tenglinum myndir hér á síðunni, einnig er hægt að smella hér
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um verðlaunin og Alþjóðalegan skólamjólkurdag FAO veitir Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS, í síma 860 - 2282.
http://www.ms.is/resources/rss.aspx

Myndatexti:
Mynd 1 (2825): F.v. Guðríður Halldórsdóttir fulltrúi frá MS, Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Baldur Jónsson frá Fræðslunefnd mjólkuriðnaðarins , Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS.

Úrslit teiknisamkeppninnar 2009
Tíundi Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn
Úrslit í teiknisamkeppni barna í 4. bekk grunnskólanna 2009
Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, tilkynnti fyrir skömmu úrslit í teiknisamkeppni Alþjóðalega skólamjólkurdagsins, sem haldinn er hátíðlegur síðasta miðvikudag í september ár hvert. Eins og undanfarin ár barst mikill fjöldi teikninga í samkeppnina, sem Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins stendur að hér á landi. Að sögn Guðnýjar Steinsdóttur, markaðsstjóra MS, var meiri þátttaka í keppninni nú en undanfarin ár og bárust 1300 teikningar frá 74 skólum alls staðar að af landinu. Tíu nemendum eru veittar viðurkenningar fyrir teikningar sínar að loknu vali á úrtaki mynda sem lagt er fyrir menntamálaráðherra, sem jafnframt er formaður dómnefndar.
Markmið keppninnar er að vekja athygli á mikilvægu hlutverki mjólkur í daglegu mataræði barna. Neysla mjólkur hefur aukist í grunnskólum á undanförnum árum, sem m.a. má rekja til mjólkurkælivéla sem víða hafa verið settar upp í skólunum.
Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn að undirlagi Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO. Að því tilefni, sem fyrr segir, fer árlega fram hér á landi teiknisamkeppni meðal nemanda í fjórða bekk í grunnskólum landsins. Eru verðlaunateikningarnar notaðar á veggspjöld og annað kynningarefni vegna Skólamjólkurdagsins sem fram fer í september ár hvert.
Vinningshafarnir:
Auður Mist Halldórsdóttir Vesturbæjarskóla; Logi Árnason Vogaskóla; Bjarki Þór Hermannsson, Ölduselsskóla; Camilla Anna Patriarca, Fellaskóla;
Iðunn Gigja Kristjánsdóttir, Háteigsskóla; Kamilla Mist Gísladóttir, Húsaskóla; Arna Valdís Björgvinsdóttir, Snælandsskóla; Æsa Katrín Sigmundsdóttir, Brúarásskóla; Elísabet Eir Óttarsdóttir, Hrafnagilsskóla; Jakob Ernfelt Jóhannesson, Hrafnagilsskóla.
Til sýnis á vefnum:
Hver verðlaunahafanna fær 25 þúsund krónur, sem renna óskiptar í bekkjarsjóð viðkomandi. Vinningsteikningarnar verða senn aðgengilegar á vefslóðinni www.ms.is.

F.v. Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS, Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Björn S. Gunnarsson frá Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins íhugul við myndavalið.
Níundi Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn
Úrslit í teiknisamkeppni barna í 4. bekk grunnskólanna - 2008
Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, tilkynnti fyrir skömmu úrslit í teiknisamkeppni Alþjóðalega skólamjólkurdagsins, sem haldinn er hátíðlegur síðasta miðvikudag í september ár hvert. Eins og undanfarin ár barst mikill fjöldi teikninga í samkeppnina, sem Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins stendur að hér á landi. Að sögn Guðnýjar Steinsdóttur, markaðsstjóra MS, bárust tæplega 900 teikningar frá 54 skólum alls staðar að af landinu. Tíu nemendum eru veittar viðurkenningar fyrir teikningar sínar að loknu vali á úrtaki mynda sem lagt er fyrir menntamálaráðherra, sem jafnframt er formaður dómnefndar.
Markmið keppninnar er að vekja athygli á mikilvægu hlutverki mjólkur í daglegu mataræði barna. Neysla mjólkur hefur aukist í grunnskólum á undanförnum árum, sem m.a. má rekja til mjólkurkælivéla sem víða hafa verið settar upp í skólunum. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra tilkynnti í menntamálaráðuneytinu þriðjudaginn 7. apríl hvaða tíu teiknarar hlytu verðlaun í samkeppninni að þessu sinni.
Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn að undirlagi Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO. Að því tilefni, sem fyrr segir, fer árlega fram hér á landi teiknisamkeppni meðal nemanda í fjórða bekk í grunnskólum landsins. Eru verðlaunateikningarnar notaðar á veggspjöld og annað kynningarefni vegna Skólamjólkurdagsins sem fram fer næst í september.
Vinningshafarnir 2009
Harpa Mjöll Þórsdóttir í Húsaskóla, Ingibjörg Elísa Jónatansdóttir í Öldutúnsskóla, Lára Sif Davíðsdóttir í Sjálandsskóla, Embla Líf Trepte Elsudóttir í Grunnskóla Bláskógabyggðar, Elmar Blær Arnarson í Hrafnagilsskóla, Kristín María Vilhjálmsdóttir í Fellaskóla, Þórhallur Tryggvason í Ísaksskóla, Sveinbjörg D. Steinþórsdóttir í Fellaskóla, Hafþór Ingólfsson í Nesskóla, og Valgerður Pétursdóttir í Síðuskóla.
Til sýnis á vefnum
Hver verðlaunahafanna fær 25 þúsund krónur, sem renna óskiptar í bekkjarsjóð viðkomandi. Vinningsteikningarnar verða senn aðgengilegar á vefslóðinni www.ms.is.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um verðlaunin og Alþjóðalegan skólamjólkurdag FAO veitir Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS, í síma 860 2282.
Fréttatilkynning frá Mjólkursamsölunni 15. apríl 2009.
Myndatexti:
F.v. Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS, Björn S. Gunnarsson frá Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra íhugul við myndavalið.
Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn
Holl mjólk og heilbrigðir krakkar
Skólamjólkurdagurinn 24. september 2008
Þann 24. september næstkomandi verður alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn haldinn hátíðlegur í níunda sinn. Í tilefni dagsins býður Mjólkursamsalan öllum grunnskólabörnum landsins upp á mjólk í skólunum og má reikna með að þar verði drukknir 12.000 lítrar af mjólk. Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn hátíðlegur víða um heim en það er Matvælastofnun Sameinuðu þjóðana sem hvetur til að haldið sé upp á daginn. Á Íslandi er haldið upp á hann undir kjörorðunum "Holl mjólk og heilbrigðir krakkar".
Með deginum vill íslenskur mjólkuriðnaður vekja athygli barna, foreldra og starfsfólks skólanna á mikilvægi mjólkur í fæði barnanna. Mjólkurneysla barna og unglinga hefur dregist verulega saman víða um heim á síðustu árum, þar á meðal hér á landi. Hart er sótt að mjólkinni og mikið drukkið af alls kyns söfum og gosdrykkjum.
Mjólk er mjög próteinrík og auk þess mikilvæg uppspretta 11 lífsnauðsynlegra vítamína og steinefna í fæðunni. Sérstaða mjólkur felst þó fyrst og fremst í því hve góður kalkgjafi hún er, en kalk er mjög mikilvægt fyrir byggingu beina. Vart er hægt að hugsa sér betri og næringarríkari drykk en mjólk til að gefa börnum sínum og unglingum og full ástæða til að hvetja þau til að auka mjólkurneyslu sína.
Samtímis því að skólamjólkurdagurinn er haldinn hátíðlegur er árlegri teiknisamkeppni hleypt af stokkunum. Öllum nemendum 4. bekkjar er boðið að taka þátt í samkeppninni. Myndefnið er algjörlega frjálst en æskilegt er að myndefnið tengist hollustu mjólkurinnar fyrir ungt fólk.

Úrslit í teiknisamkeppni Alþjóðlega skólamjólkurdagsins 2007
Úrslit liggja fyrir í teiknisamkeppni Alþjóðalega skólamjólkurdagsins. Mjólkursamsalan stendur fyrir keppninni en þátttakendur eru nemendur í 4. bekk í grunnskólum landsins. Mikill fjöldi teikninga barst í keppnina en tíu nemendur fengu viðurkenningu fyrir teikningar sínar. Alþjóðlegi skólamjólkurdagurinn er haldinn hátíðlegur síðasta miðvikudag í september ár hvert að undirlagi Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO.
Með keppninni vill Mjólkursamsalan vekja athygli á mikilvægu hlutverki mjólkur í daglegu mataræði barna. Mjólkurdrykkja hefur aukist í skólum og má það meðal annars rekja til mjólkurkælivéla sem eru í um helmingi íslenskra grunnskóla og njóta mikilla vinsælda meðal barna.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra er formaður dómnefndar teiknisamkeppni Alþjóðlega skólamjólkurdagsins. Hún tilkynnti fyrir skömmu hvaða tíu teiknarar hlutu verðlaun í samkeppninni. Verðlaun er veitt fyrir þær tíu myndir sem þóttu skara fram úr. Hver verðlaunahafanna fékk 25 þúsund krónur, sem renna í bekkjarsjóð vinningshafana.
Vinningshafarnir eru:
Bjarney Björt Björnsdóttir, Fellaskóla á Fljótdalshéraði; Þuríður Nótt Björvinsdóttir, Fellaskóla á Fljótdalshéraði; Álfey Sól Haraldsdóttir, Hvaleyrarskóla; Eyjalín Harpa, Grunnskóla Hornafjarðar; Andrea Thorsteinsson, Flúðaskóla; Camilla Rós Þrastardóttir Grunnskóla Stykkishólms; Hróbjartur Höskuldsson, Hvassaleitisskóla; Kjartan Tryggvason, Hvassaleitisskóla; Arngrímur Guðmundsson, Hlíðaskóla og Anna Jónína Guðmundsdóttir, Grunnskóla Önundarfjarðar.
Vinningsteikningarnar verða notaðar á veggspjöld og annað kynningarefni vegna Skólamjólkurdagsins 2008 og verða aðgengilegar á vefslóðinni www.skolamjolk.is og www.ms.is.
Nánari upplýsingar veitir Guðríður Halldórsdóttir hjá Mjólkursamsölunni í síma 569 2241.
Myndatexti:
Guðríður Halldórsdóttir vöruþróunarsviði MS, Guðný Steinsdóttir markaðsstjóri MS og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.

Verðlaun fyrir skólamjólkurmyndir - 2006
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra er formaður dómnefndar teiknimyndasamkeppni Alþjóðlega skólamjólkurdagsins sem fram fór í fyrra. Hún tilkynnti hvaða tíu teiknarar hlutu verðlaun fyrir bekkinn sinn í teiknimyndasamkeppninni. Alls bárust hátt í eitt þúsund myndir frá 4. bekkingum í grunnskólum landsins í keppnina um verðlaunasætin tíu. Menntamálaráðherra sagði að erfitt hafi verið að velja milli myndanna „því þær endurspegluðu mikið hugmyndaflug höfunda, skemmtilega litanotkun listrænan metnað,” sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra.
Verðlaun er veitt fyrir þær tíu myndir sem þóttu skara fram úr. Hver verðlaunahafanna fékk 25 þúsund krónur, sem renna í bekkarsjóð vinningshafana. Vinningshafarnir eru; Kolfinna Hjálmarsdóttir, 4. I.B Engidalsskóla Hafnarfirði, Hulda Ósk Jónsdóttir, 4 bekk Hafralækjarskóla Húsavík, Agnes Diljá Gestsdóttir, 4 bekk Patreksskóla Patreksfirði, Tinna Björk Ingvarsdóttir, 4 SK Árskóla Sauðárkróki, Sveinn Andri Jóhannsson, Grunnskóla Ólafsfjarðar, Nanna Rán Brynjarsdóttir, 4.2 Síðuskóla Akureyri, Birgitta Björgvinsdóttir 4.1 Síðuskóla Akureyri, Sunna Margrét Tryggvadóttir, 4 K.K Austurbæjarskóla Reykjavík, Ester Steindórsdóttir, 4 HK Hraunvallaskóla Hafnarfirði og Alexander Helgason, 4 HRP Hraunvallaskóla
Hafnarfirði. Hér má skoða vinningsmyndirnar.
Teikningarnar voru notaðar á veggspjöld og annað kynningarefni vegna Skólamjólkurdagsins 2007. Í dómnefndinni sátu auk menntamálaráðherra Magnús Ólafsson, aðstoðarforstjóri MS, Einar Matthíasson, framkvæmdastjóri viðskipta- og þróunarsviðs MS og Björn S. Gunnarsson, Guðríður Halldórsdóttir og Sigurður Mikaelsson frá Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins.
Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins vill með keppninni vekja athygli barna, foreldra og starfsfólks á mikilvægi hlutverks mjólkur í daglegu mataræði barnanna. Mjólkurdrykkja fer vaxandi í skólum og má það meðal annars rekja til mjólkurkælivéla sem eru í um helmingi íslenskra grunnskóla og njóta mikilla vinsælda meðal barna.
Mjólkurneysla skólabarna á Íslandi
Hér á landi hefur mjólkurneysla barna dregist töluvert saman frá því sem áður var og nær meðalneysla í skólanum ekki nema 0,8 dl á barn. Nýlegar rannsóknir á neysluvenjum og mataræði íslenskra barna á grunnskólaaldri hefur leitt í ljós að hluti barna drekkur minna en einn fjórða úr mjólkurglasi á dag. Þessi börn ná varla ráðlögðum dagsskammti af kalki því langstærsta hlutfall kalks fáum við einmitt úr mjólk og mjólkurvörum. Ráðlagður dagskammtur kalks fyrir börn á aldrinum 4 - 10 ára eru 800 mg á dag og fyrir börn 11-14 ára 1000 mg á dag. Til þess að ná ráðlögðum dagskammti þurfa börnin að fá þrjú til fjögur mjólkurglös eða sambærilegt magn annarra mjólkurvara á dag.
Mjólk og mjólkurvörur eru þær fæðutegundir sem gefa hvað mest kalk og stuðla því að vexti og þroska beina. Beinin taka mikinn vaxtarkipp á unglingsárunum, um 11 til 14 ára aldurinn hjá stúlkum og 13 til 17 ára hjá drengjum. Á þessum árum er mikilvægt að huga vel að þeim þáttum sem hafa jákvæð áhrif á beinin svo sem að góðri næringu.